Fara í aðalinnihald

Færslur

Júróvisjón kvöld tvö

Heimafólk og gestir voru nokkuð sannspáir varðandi úrslit kvöldsins. Þeir allir flottir og mér finnst lagið sem Eiríkur syngur fallegt, það er að vísu það eina sem ég var búin að heyra áður Ég vona bara að hópurinn sem stóð að framlagi Jónsa skipti um búninga fyrir næstu umferð. Þar á ég við "bert að neðan, alltof mikið að ofan" bakraddasöngkonurnar. Þessi ósköp skáru hryllilega í augun, ekki beru leggirnir heldur blússan og slaufudraslið sem gerði það að verkum að þær voru með brjósin upp fyrir höku. Við sem sagt sátum heima þó að í kvöld sé formlega blótaður þorri í íþróttahúsi Hrafnagilsskóla. Hér var samt þorraveisla með öllu tilheyrandi. Meðal gesta nýir íbúar Eyjafjarðarsveitar sem fluttu í gær. Litli bróðir keypti húsið á ská hinum megin við götuna þannig að núna er helmingur íbúanna hér í Brekkutröðinni afkomendur ömmu og afa (í fjórum húsum af átta). JG borðaði ekkert sagðist vera búinn að fá nóg af "forramat". Tvíburarnir hurfu fljótlega, eru að "lana...

HM í handbolta

Fjölskyldan situr spennt fyrir framan sjónvarpið þessa dagana yfir handboltanum. Núna eru feðgarnir búnir að koma sér vel fyrir. Mér hefur ekki tekist að horfa á heilan leik. Ef að illa fer að ganga fer ég og horfi á eitthvað annað. En það er alltaf gaman að fylgjast með og ég missi helst ekki af þjóðsöngnum sem er í sérkennilegri útgáfu á þessu móti. Nokkrum töktum hraðari en venja er og landsliðsmenn gera vel að hafa í við lagið í söngnum. Það virtist mikil stemning í höllinni í dag í byrjun leiks Íslendinga og Slóvena. Það heyrðist meira að segja í íslenskum áhorfendum taka undir þjóðsönginn.

Júróvisjón

Fyrst ég er byrjuð má ég til að blogga smá um gærkvöldið. Við erum landsfræg! Fjölskyldan fyrir Júróvisjónpartý og í gærkvöldi settumst við niður með kaffi og eplaköku með rjóma, mjög pent, fyrir framan sjónvarpið. Horfðum og hlustuðum á átta lög, ekkert eftirminnilegt. Jú, IH sagði við eitt lagið að hún hefði heyrt þetta einhversstaðar. Við nánari umhugsun var það ekki sama lagið heldur eitthvað eiginlega alveg eins. Við notuðum svo útilokunaraðferðina við að geta okkur til um það hvaða lög myndu komast áfram og vorum mjög getspök. Það var bara spurning um hvort það yrði Snorri eða Sigurjón Brink. En ósköp var þetta dapurt. Við lifum bara í voninn það sem eftir er sé skárra.

Ermaprjón

Ég mátti bara til að setja inn mynd af nýjasta hannyrðaafrekinu. Þó það sé ekki sérlega stórvægilegt þá er það nokkuð smart. Hm... Verst hvað ég hef verið þreytt þegar ég fékk bóndann til að smella af mér mynd. (þetta er sú skárri). Ég prófaði að minnka myndina aðeins. Mér sýnist ég verða öll miklu mjórri! Það er nú bara til bóta. Við mættum í ræktina í morgun hjónakornin. JÓH fór og hljóp og lyfti í klukkutíma meðan ég teygði og strekkti í Fit pilates tíma. Ég verð örugglega með strengi á einhverjum skrítnum stöðum á morgun. Stefni að því að fara á morgun aftur í ræktina. Hananú, þá er ég búin að lýsa því yfir opinberlega.

Brrrr....

Mér hefur aldrei þótt gott að vera kalt. Þannig að þegar viðrar eins og í dag reyni ég að klæða mig vel. Það dugar ekkert nema lopapeysan, ullarsokkar, ullarhúfa(ég á nokkrar heklaðar af ýmsum gerðum) og ullarvettlingar að ógleymdu stóra ullarsjalinu sem ég prjónaði í fyrravetur. Þegar ég stikaði heim úr vinnunni seinnipartinn var hitastigið (frostið) í rúmum -20°C og veðrið stórkostlega fallegt. Þó að það skini sól smástund upp úr hádeginu náði hún lítið að hlýja okkur nema í anda. Ég ætlaði að fara í sund í morgun en hvort sem það var af kuldanum eða e-u öðru komst ég ekki á fætur fyrr en rúmlega hálf átta og þá er nú ekki tími til neins annars en að grípa morgunmatinn á hlaupum út úr dyrunum. Nýja laugin okkar opnar hálf sjö á morgnanna og var hlý og góð í morgun þrátt fyrir kuldann og nemendur fóru í sundtíma enda búnir að bíða í tvö ár eftir lauginni. Það kom í Mogganum í dag mynd af pabba frá sundlaugarvígslunni á laugardaginn. Hann og Rósa Á. klipptu á borðann og voru bæði naf...