Fara í aðalinnihald

Færslur

rigning

Það rigndi loksins í gærkvöldi og rigndi í nótt. Núna er aftur komið sólskin og 20 stiga hiti. Það er þvotta og hreingerningadagur í dag.

Harry Potter

Harry Potter var mættur hér á laugardagsmorguninn. Ég laumaðist til að lesa fyrstu 4 kaflana á meðan Halldór var í vinnunni og náði svo bókinni í gærkvöldi og kláraði hana í nótt! Nú eru þeir bræður báðir farnir í vinnuna svo ég ætla að lesa aðeins betur yfir þá kafla sem mér fannst skemmtilegastir - og eða erfiðastir. Ég hef alltaf heillast af þessum bókum og þær eru til hér á heimilinu bæði á ensku og íslensku. En ég hef líka alltaf verið hrifin af ævintýrum og varð ekki fyrir vonbrigðum með lokabókina.

Bíltúr og bað

Jóhann Gylfi að leika sér í heitri lauginni í Laugafelli í sólskini og hita í fyrradag.

Rigning

Skrapp óvænt með þjóðverja austur að Goðafossi seinnipartinn í gær. Þá kom hin langþráða rigning loksins hérna við Eyjafjörðin. Ég hef aldrei lent í því að vera á áætlun við fossinn fyrr en fólkið rigndi niður. Þó að það væru allir vel búnir og að sjálfsögðu með regnslár. Það var líka svolítið skrítið að tala um birtu allan sólarhringinn þegar úti var svo þungbúið að það var hálf skuggsýnt. Svo stytti bara upp í gærkvöldi og í dag er aftur kominn heiður himinn (eða svo til). Var með sjálfbjarga túlk sem var búin að koma til Íslands áður hún fór nokkuð rétt með en bætti stundum við eins og þegar hún fór að segja frá hvalkjötsáti en var að lýsa því hvernig við verkum hákarl. Þá gat ég ekki á mér setið og leiðrétti hana en stúlkukindinni fannst ekki allur munur á. Verð líka að játa að ég fór aðeins vitlaust með stærð bílaflotans þegar við ókum Hjalteyrargötuna fram hjá höfuðstöðvunum ég held að rúturnar séu fleiri en ég nefndi ehe....

JG

Litli prinsinn var að skreiðast geispandi fram úr rúminu rétt í þessu (klukkan er að ganga ellefu). Hann kom mjög seint heim í gærkvöldi því þeir fóru feðgarnir til að slá í kringum bústaðinn eftir kvöldmat. Hann var svo heppinn að Trausti frændi var að bera á og fékk að fljóta með nokkra hringi.

"Miðvikudagur og lífið gengur sinn gang ..."

Frekar lágskýjað í Eyjafirðinum í dag. Það ætti að vera rigning. Fullkomið veður til að vera inni við og taka til hendinni. Myndin er tekin í síðustu viku þegar aðeins bjartara var í veðri. Klukkan er um það bil hálf eitt eftir miðnætti minnir mig.

Sumarfríhíí....

Sólríkur föstudagur þegar Grand Princess lá við bryggju á Akureyri. Ekkert sérstaklega fallegt skip utanfrá séð finnst mér, brúin er eins og einhverskonar æxli framan á yfirbyggingunni. Stutt og hátt og ristir víst ekki nema um fjóra metra. En það var voða gott veður og Ameríkanarnir sem ég fór með austur að Goðafossi og síðan í Laufás voru glaðir og ánægðir og gáfu mér nokkra dollara í þjórfé að skilnaði. Í morgun voru það Spánverjar á sama rúntinum og en spænskukunnáttan takmarkast því miður við "hola, cafe uno, por favor, vino tinto & vino blanco". Þetta dugar að vísu nokkuð vel en ekki þegar þarf að tjá sig um landbúnað á íslandi og efnahagsmál. Þannig að í svoleiðis tilfellum fær maður "millistykki" með sér eða öðru nafni túlk. Ég er búin að fara í tvær ferðir með "millistykki" og hef verið svo heppin að hafa hafa haft huggulega karlmenn með mér í bæði skiptin. Það er samt miklu skemmtilegra að vera í beinu sambandi við farþegana. Núna koma nok...