Vaknaði snemma þennan sunnudagsmorguninn. Gærkvöldið ennþá í eldhúsinu í óþvegnum glösum og kaffibollum, matarlykt í loftinu. 29 meðlimir stórfjölskyldunnar í mat og lambi slátrað af því tilefni, soðið og steikt. Góð og nærandi stund í samvistum við þá sem standa manni nærri. Mikið hlegið en líka grátið. Það var gott að eiga kyrrláta stund í kirkjunni í morgun. Haustið úti fyrir, snjóföl á fjallatoppunum en birkitrén í garðinum ennþá hlaðin sölnuðum laufblöðum,. Sólargeislarnir sem skinu inn um litlu lituðu rúðurnar í kirkjugluggunum vörpuðu hlýrri birtu yfir kertaljósin og andlit fólksins. Hljómmikil rödd prestsins, hughreystandi. Söngurinn auðvitað yndislega fallegur. Láttu nú ljósið þitt, loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þ...
Í dagsins önnum.