Fara í aðalinnihald

Færslur

Gleðilegt ár 2009

Eftir að hafa dottið inn á Facebook um jólin er ég loks komin aftur heim og held ég haldi bara áfram að skrifa hérna þegar mér dettur eitthvað skemmtilegt í hug. Fésbókin er annars skrítið fyrirbæri en tilgangurinn er ekki alveg ljós enn. Bloggið færði mér nánari tengsl við frænkurnar mínar og kannski á þetta eftir að tengja mann meira við gamala vini sem eru stundum bæði langt og stutt í burtu. Það er bara svo margt annað sem mig langar til að gera en að hanga í tölvunni. Áramótaheitið í ár er alveg klassískt. Ég ætla að hreyfa mig mikið og reglulega, eða halda áfram að gera það. Ég labba í vinnuna... á hverjum degi, alla leið og heim aftur. Hm... Svo ætlum við hjónakornin að halda áfram að stunda fjallgöngur. Eins og sjá mátti á jólakortinu fékk bóndinn "bakteríuna" í sumar og það er um að gera að hamra járnið meðan það er heitt, segi ég. Enda gaf ég honum forláta gönguskó í afmælisgjöf og útivistarfatnað í jólagjör m.m.

Sunnudagsmorgun 12. október 2008

Vaknaði snemma þennan sunnudagsmorguninn. Gærkvöldið ennþá í eldhúsinu í óþvegnum glösum og kaffibollum, matarlykt í loftinu. 29 meðlimir stórfjölskyldunnar í mat og lambi slátrað af því tilefni, soðið og steikt. Góð og nærandi stund í samvistum við þá sem standa manni nærri. Mikið hlegið en líka grátið. Það var gott að eiga kyrrláta stund í kirkjunni í morgun. Haustið úti fyrir, snjóföl á fjallatoppunum en birkitrén í garðinum ennþá hlaðin sölnuðum laufblöðum,. Sólargeislarnir sem skinu inn um litlu lituðu rúðurnar í kirkjugluggunum vörpuðu hlýrri birtu yfir kertaljósin og andlit fólksins. Hljómmikil rödd prestsins, hughreystandi. Söngurinn auðvitað yndislega fallegur. Láttu nú ljósið þitt, loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti, signaði Jesú mæti. Eins láttu ljósið þitt lýsa í hjarta mitt, skína í sál og sinni sjálfur vaktu þar inni. Lát húmið milt og hljótt hlúa að mér í nótt og mig að nýju minna á mildi arma þinna. Ég fel minn allan hag einum þér nótt og dag, ljósið af ljósi þ...

Opart

Sá þetta sérstaka teppi á Knitty.com og vegna þess að það var að fæðast lítill frændi á dögunum þá dreif ég mig í það að prjóna það. Efri myndina tók ég áður en búið var að þvo og strekkja teppið. Svo stillti JG sér upp fyrir mig með það yfir sér. Það varð alveg í stærsta lagi en þetta var skemmtilegt og auðvelt og aldrei að vita nema ég prófi þessa uppskrift aftur við tækifæri.

laugardagshreingerning

JG vaknaði snemma í morgun og kom til að kúra undir sænginni hjá mömmu og pabba. "það verður skemmtilegur dagur í dag". Þeir feðgar drifu sig svo fljótlega í "Dalinn" til að eyða deginum á dráttarvél með skítadreifara í eftirdragi. Ég og einkadóttirin tókum til hendinni í hefðbundinni laugardagshreingerningu. Mér þykir ekki skemmtilegt að skúra svo ég verðlauna mig með því að sitja smá stund við tölvuna og skríð svo inn í stofu með prjónana og horfi á einhverja skemmtilega mynd í rólegheitunum. Með tebolla við hendina. Nýt þess að vera ótrufluð. Svo ætlum við að drífa okkur í leikhús í kvöld hjónakornin.

Mánudagsmorgun

Maddama Blíða nýkomin úr baði. Jóhann Gylfi er veikur í dag og ég er heima til tíu. Hangi náttúrulega í tölvunni á meðan og fann þá þessa skemmtilegu mynd sem er tekin einhverntíman í vor. IH tekur sig til annað slagið og baðar maddömuna við litla hrifningu eins og sjá má á svipnum. Segiði svo að kettir séu karakterlausir.

Aðalberin

Aðalberin eru tínd í Svarfaðardalnum að sjálfsögðu. Í brekkunum fyrir ofan sælureitinn okkar. Það verða ber með rjóma í kvöld.

Sólblóm

Þau eru á síðasta snúningi þessar elskur sem fanga sólina sjálfa í blómkrónum sínum. Haustið er á þröskuldinum býr sig undir að banka...