Fara í aðalinnihald

Færslur

Var að fikta í uppsetningunni á blogginu. Geri lítið meira við það þessa dagana a.m.k. er ég ekkert að skrifa. Þarf samt að skoða betur myndirnar.

Gott líf er tíðindalítið

Sumarið er allt í einu liðið og í minningunni verður það gott sumar eins og sumur yfirleitt. Veðrið er svosem ekkert aðalatriði. Við eyddum til dæmis einni viku í rigningu á Héraði byrjun júlí, en það var samt ágætis veður allan tímann. Einn góðviðrisdaginn í júlí skelltum við hjónakornin okkur í fjallgöngu og klifum Bóndann. Fjallið sem blasir við beint út um eldhúsgluggann hjá okkur 1350m annað hæsta fjallið í röðinni á eftir Kerlingu. (auðvitað er hún hærri, 1583m) Við ókum áleiðis upp í Grísarárhólfið (skógræktina) og gengum þaðan. Fórum nánast beint af augum og gekk bara bærilega. Dálítið bratt en óskaplega fallegt, mikil litadýrð í öllu grjótinu og býsna mikið gróið alveg upp á topp. Þá er bara Kerlingin eftir og gaman væri að ganga á hana og svo tindana í norður og enda á Súlum. Það er á planinu.

Sumarfrí

Ákvað að byrja bara í sumarfríi í dag. Fór í gær í fyrstu ferðina, þjóðverjar í Goðafoss og Laufás auk lystigarðsins á Akureyri. Það var mjög gott veður og allir ánægðir. Ég held samt að leiðsögnin hafi farið svona fyrir ofan garð og neðan. Blessuð stúlkukindin sem ég var með sem túlk talaði ekki mjög mikla ensku og var að auki ekkert sérlega vel að sér. Þá á ég við að hana vantaði gjarnan orð á sínu eigin tungumáli. Þannig að ég sleppti ýmsu, reyndar ansi mörgu. En hún var öll af vilja gerð greyið og ég gat klóraði mig fram úr þeim spurningum sem ég fékk sjálf á þýsku. Er bara alveg skolli góð í þýsku ef ég legg mig fram. Spjallaði lengi við hjón sem höfðu komið hér fyrir fimm árum. Þau báðu mig auðvitað að segja Eyjafjallajökull. Þar er spurning sumarsins komin.

Febrúar

í september síðastliðnum fór ég í mjög skemmtilegt ferðalag. Á einum áfangastaðnum var þessi mynd tekin. Að sinni ætla ég að láta þess ógetið hvar, en veðrið var allavega gott þennan dag.

Árið 2010

Janúar 2010 Gaman að setja þessa mynd á bloggið núna 25. janúar. Hún er tekin fyrir rúmum mánuði síðan, um jólaleytið þegar allt var á kafi í snjó. Jóhann var ekki fyrr búinn að setja jólaseríur á tré, runna og þakskegg en að allt fennti í kaf og litlu plastjólasveinarnir okkar (eru bara um 30 cm) hurfu í margar vikur. Núna er allur snjór horfinn af pallinum og orðið nánast autt í garðinum. Sunnanhvassviðri í dag en við höfum verið blessunarlega laus við rigningu. Hátt í fimmtán stiga hiti.

Langsjal úr einbandi

Í fyrrasumar keypti ég tvær hespur af einbandi frá Þingborg til að prjóna þetta sjal. Mjög skemmtilegt íslenskt band. Sjalið hefði mátt vera aðeins lengra en ég ætla að punta mig með því í leikhúsi í kvöld.

Opart 2

Mér fannst svo skemmtilegt að prjóna fyrra teppið að nú er ég búin með annað. Það er töluvert minna og úr kambgarni. Til að fá rétt form á teppið þarf að strekkja það til og kom þá "hurðin" sem er geymd úti í bílskúr í góðar þarfir. (Ég er búin að kaupa garn í eitt teppi í viðbót.