Fara í aðalinnihald

Færslur

Svarfaðardalurinn í dag 20. maí 2012.

Lengi má manninn reyna

Fyrir réttri viku síðan lét ég draga mig út að hlaupa. Í dag skokkaði ég, labbaði líka, rúma fjóra kílómetra og er það nú nokkuð gott miðað við mig sem þoli alls ekki hlaup af nokkru tagi. Með þessu eru engin sérstök markmið nema að segja ekki nei þegar nágrannakonurnar hinum megin við götuna hóa í mig. Við sjáum til hvernig gengur.

Kleinubakstur

Tilbúnar -  best heitar með kaldri nýmjólk.  Sjóðandi feiti - sýnið varúð! Búið að hnoða deig, fletja, skera og snúa. Kleinurnar tilbúnar í pottinn. 

Fannfergi

  Jón J. Víðis tók þessa mynd við Gil í Eyjafjarðarsveit (þá Hrafnagilshreppi) í apríl 1951.

Við póstkassann

Á leiðinni heim úr vinnunni staldra ég gjarnan við póstkassann. Eftir að við hættum að kaupa Morgunblaðið er hann að vísu stundum tómur, en það þarf samt að gá. Í dag var ég svo heppin að rekast á landpóstinn sjálfann og rétti hann mér Bændablaðið og Vikudag ásamt gluggabréfi út um bílgluggann. Þegar pabbi fór að keyra mjólkurbíl um nítjánhundruð og sjötíu! var hann ekki bara að ná í mjólkurbrúsa á brúsapalla í Hrafnagilshreppi. Hann var líka póstur. Við fengum þ.a.l. öll aukablöðin í nokkur ár einmitt um það leyti sem ég var að læra að lesa. Hann bar út póstinn um leið og hann skilaði brúsunum og þar sem ekki var póstkassi stakk hann samanvöfðum blöðum og bréfum undir hankann á brúsalokinu. Mér varð hugsað til þessa tíma þegar ég hitti Landpóstinn okkar í dag því þó það séu liðin meira en fjörtíu ár frá því pabbi var póstur er enn hafður sami háttur á pósflokkuninni, hver bær eða hús hefur sinn vasa á löngum dregli sem er rúm dagblaðsbreidd. Þegar búið er að flokka allt er renning...
Öskudagur Öskudagsbúningurinn er prufukeyrður á sprengidagshátíð í skólanum, stundum jafnvel búið til tvöfallt sett en ekki að þessu sinni. Í fyrra var drengurinn Viddi úr Leikfangasögu  - Toy story. Núna Tinni. Að sjálfsögðu. Árla morguns á öskudag setti ég gelið aftur í hárið á drengnum, spreyjaði svo yfir með gulu og hárlakkaði yfir allt. Greiðslan hélt til kvölds þegar hann var skikkaður í sturtu sér til armæðu. Um átta leytið mætti sá fyrsti úr hópnum, lögrelgumaður í fullum herklæðum. Við fórum svo af stað og tókum upp í einn Iron man, kúreka og einn í svartri skykkkju yfir vetrarúlpunni. Það er betra að vera vel klæddur. Fyrsta stopp Eimskip þar sem þeir stukku glaðir inn á Flytjanda og síðan Eimskip þar sem starfsmenn voru uppáklæddir í tilefni dagsins. Ég sá a.m.k.einn kúreka inn um gluggann. Þeir fengu síðan að labba en ég fór og fékk kaffi á skrifstofu S.B.A. í Hjalteyrargötu. Þar sátu starfsmenn á skrifstofu og tóku á móti syngjandi börnum, undir borði var stór ...

Nýtt ár

Nýtt ár. Eftir að hafa baksað á móti vindstrengjum og skafrenningi á leiðinni heim úr vinnunni, hvað er betra en að koma inn í hlýjuna, hita sér kakó og borða grillað brauð með osti. Og það verður að grilla það í bakarofninum eins og mamma gerði í fyrir svo löngu þegar við krakkarnir komum inn úr snjónum. Hræra svo saman mjöli og fræjum í brauð sem kemur ilmandi úr ofninum rétt í því þegar Jóhann Gylfi er tilbúin með skinkuhornin, það er nesti fyrir morgundaginn. Súpan á leiðinni í pottinn þegar janúarmyrkrið skellur endanlega á. Vindhviðurnar berja á runnunum og trjánum í garðinum og við sem heima erum bíðum eftir þeim sem eru á leiðinni. Svona er Ísland í janúar.