Fara í aðalinnihald

Móðir Teresa

Fólk er oft sjálfselskt, óskiljanlegt, ótryggt
- fyrirgefðu því samt.
Ef þú ert örlátur muntu ef til vill verða ásakaður um sjálfselsku
- vertu samt örlátur

Ef þér vegnar vel muntu eignast falska vini og sanna óvini,
leitastu samt við að vegna vel.
Ef þú ert heiðarlegur og hreinskiptinn þá mun fólk ef til vill notfæra sér þig.
- vertu samt heiðarlegur og hreinskiptinn.

Það sem þú hefur eytt árum í að byggja upp mun einhver ef til vill eyðileggja á einni nóttu
- byggðu samt

Ef þú finnur frið og hamingju verður einhver ef til vill öfundsjúkur
- vertu samt hamingjusamur

Það góða sem þú gerir í dag verður ef til vill gleymt á morgun.
- Gerðu samt góðverk í dag.

Gefðu heiminum það besta sem þú getur, og það nær áreiðanlega skammt.
- Gefðu samt það besta sem þú getur.

Því þegar allt kemur til alls þá er þetta allt milli þín og Guðs.
- það var aldrei milli þín og hinna.

Móðir Teresa

Vinsælar færslur af þessu bloggi

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur. 

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...