Fara í aðalinnihald

áfram af íþróttaálfinum

Íþróttaálfurinn vaknaði í morgun með ljótan astmahósta er allur hálf druslulegur. Er líklega búinn að striplast of mikið í búningnum sem er ekki skjólgóð flík. Við erum enn kvekkt eftir lungnabólguna í haust og þess vegna erum við mæðginin heima í dag. Það er verst að hann átti að fara til tannlæknis seinnipartinn. Ég er að hugsa um að fara bara með hann ef hann verður ekki með hita.

Ég er með hálfum huga í tölvunni því það er eitthvað að henni núna. Jóhann sat í símanum í allt gærkvöld með tölvulækninn á hinum endanum en þeir fundu ekki almennilega út hvað er að.
Það er líklega öruggast að slökkva og kveikja frekar á fartölvunni.

Helgin var viðburðarík og skemmtileg. Nú get ég loks andað léttar. Ég hef ekkert verið að blogga um það sem ég hef verið að bauka við í vetur, en ég dreif mig á vetrarlangt námskeið í svæðisleiðsögn og hef verið í skóla flesta laugardaga síðan í september. Náttúrulega alveg óskaplega skemmtilegt. Það var alveg kominn tími til að víkka sjóndeildarhringinn aðeins og kynnast nýju fólki. Ég var í munnlegu prófi á laugardaginn og náði því þó ég hafi nú ekki æft mig eins vel og ég hefði þurft að gera.

En það er best að halda áfram að horfa á skíðagöngu í beinni útsendingu og prjóna en ég er búin að taka peysuna hennar IH fram aftur og ætla að drífa mig í að klára hana.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

28. september 2013

Haustlitir Morgunsólin bræðir héluna af blöðum reynitrésins. Bakvið glittir í heiðan himinn. Fallegri gerast haustdagarnir ekki. Seinna þegar þornað hafði betur og golan gældi við gróðurinn skrjáfaði í laufblöðunum þegar þau féllu til jarðar. 

Að henda, eða ... henda ekki.

Í augnablikinu er ég að berjast við tilfinningu sem ég finn alltof, alltof, að því að mér finnst akkúrat núna, sjaldan fyrir. Mér finnst ég vera að drukkna í hlutum sem mig vantar ekki! Vil henda. Frekar óskiljanleg tilfinning í mínu tilfelli því allajafna er ég þekkt fyrir að sanka að mér allskonar dóti og er stolt af því að tilheyra hópi "hrúgukvenna".  Sem þýðir heimilisleg óreiða, en raunar allt á sínum stað. Nú stendur yfir páskahreingerning og ég henti áðan eldhúsáhaldi sem ég á annað eintak af og er strax komin með samviskubit, ég henti líka nokkrum skrúfum (eins gott að JÓH lesi þetta ekki). Myndin er alveg ótengd pistlinum, allsvakaleg súkkulaðikaka sem ég bakaði fyrr í vetur. 

Saurbæjarkirkja

Messa í Saurbæjarkirkju í morgun þann 28. október. Alltaf gaman að koma þar, kirkjan hlý og notaleg í morgun og sólin skein inn um austurgluggana sem eru sitthvoru megin við altarið. Saurbæjarkirkja var byggð 1858 og er um margt merkilegt. Hún er stærsta torfkirkjan sem enn stendur á Íslandi og sú einfaldasta að gerð. Þegar Saurbæjarkirkja er reist eru tiltölulega nýbyggðar timburkirkjur í Eyjafirði fram (Grund 1842, Hólum 1853, Möðruvöllum 1848 og Munkaþverá 1844) og því áhugavert að torfkirkja skyldi byggð í Saurbæ og raunar óútskýrt hvort það var eingöngu sérviska staðarhaldara eða hagkvæmni sem réðu þar mestu en kirkjan stendur hátt á hól og fremur vindasamt og timburkirkjunni hættara við foki en þeirri sem hlaðið væri utan með. Enda stendur hún enn og fagnaði 150 ára afmæli fyrir nokkrum árum. (Reyndar standa þrjár af hinum kirkjunum enn þó ein hafi fokið einu sinni, Grundarkirkja var rifin þegar sú sem enn stendur var reist 1905). Myndin af kirkjunni er frá því um aldamóti...