Íþróttaálfurinn strunsaði beint inn í herbergið sitt þegar við komum heim og klæddi sig í náttföt. Þegar ég mætti honum svo á ganginum með sængina sína í eftirdragi spurði ég hvort eitthvað væri að?"Ég er með hausverk í maganum" sagði hann og lagðist upp í stofusófa með sængina sína ofan á sér og pantaði barnaefni.
Hann er að æfa sig í því að loka öðru auganu.
Ummæli
Skrifa ummæli