Keyrði upp nýjan blogger í gærkvöldi og það hafa dottið út einhverjir stafir. Ég þarf að gefa mér tíma til að fara yfir uppsetninguna einhverntíman fljótlega. "Þegar ég nenni"...
Allt gott að frétta úr snjónum, sem óðum virðist vera að hverfa. Það var hálf ófært hingað í dag, þannig að mamma náði í mig seinnipartinn til að bjóða mér í nýbakaðar kleinur. Þau pabbi eru í fyrsta sinn með negld snjódekk á jeppanum en það hefur heldur en ekki komið sér vel undanfarna daga.
Desemberbyrjun nálgast óðfluga. Ég verð að ljúka við ákveðið verkefni fyrir föstudag. Hvað getur það verið mikið mál að skrifa eina andsk. ritgerð upp á 3 síður?? Það er ekki spurning um að fá frest það þarf að ljúka þessu af punktur. Það er víst nóg annað að gera.
Við ætlum á Herra Kolbert á föstudagskvöldið. Á laugardaginn verður laufabrauðið. Og svo framvegis....
Bless í bili.

Ummæli
Skrifa ummæli