Jamm og jæja
Það er barasta liðinn heill mánuður af nýju ári og ég er ekki farin að skrifa stafkrók inn á bloggið mitt. Ef að það er merki um afköst á öðrum sviðum má öruggt vera að það hefur ekki mikið verið að gerast.
Mér hefur alltaf þótt veturinn ágætur tími en nú bregður svo við að mig langar bara ekkert á fætur í myrkrinu á morgnanna. En nú er janúar að verða liðinn hjá og þó febrúar sé lengri en venjulega þá er hann samt stysti mánuður ársins. Svo þetta fer að koma.
Við erum búin að fara á eitt þorrablót, í Svarfaðardalnum og skemmtum okkur konunglega. Erum ekki búin að taka ákvörðun um það hvort við förum á sveitarblótið sem er 9. febrúar.

Ummæli
Skrifa ummæli