Fara í aðalinnihald

Færslur

áfram af íþróttaálfinum

Íþróttaálfurinn vaknaði í morgun með ljótan astmahósta er allur hálf druslulegur. Er líklega búinn að striplast of mikið í búningnum sem er ekki skjólgóð flík. Við erum enn kvekkt eftir lungnabólguna í haust og þess vegna erum við mæðginin heima í dag. Það er verst að hann átti að fara til tannlæknis seinnipartinn. Ég er að hugsa um að fara bara með hann ef hann verður ekki með hita. Ég er með hálfum huga í tölvunni því það er eitthvað að henni núna. Jóhann sat í símanum í allt gærkvöld með tölvulækninn á hinum endanum en þeir fundu ekki almennilega út hvað er að. Það er líklega öruggast að slökkva og kveikja frekar á fartölvunni. Helgin var viðburðarík og skemmtileg. Nú get ég loks andað léttar. Ég hef ekkert verið að blogga um það sem ég hef verið að bauka við í vetur, en ég dreif mig á vetrarlangt námskeið í svæðisleiðsögn og hef verið í skóla flesta laugardaga síðan í september. Náttúrulega alveg óskaplega skemmtilegt. Það var alveg kominn tími til að víkka sjóndeildarhringinn aðe...

Íþróttaálfurinn

Þessi mynd þarfnast engra sérstakra útskýringa. J.G. fékk búninginn á föstudaginn og hefur ekki farið úr honum síðan. Athugasemdin frá stóru bræðrum hans var svolítið skemmtileg: "Aldrei fengum við svona keypta búninga þegar við vorum litlir!" (Það verður samt að segjast alveg eins og er að þetta er þvílíkt drasl að ég er ekki viss um að það endist fram að öskudegi).

Eftir blótið

Það er ekki laust við að ég sé ennþá svolítið lúin. Ég er komin á svo virðulegan aldur að ég get ekki vakað endalaust án þess að það séu einhver eftirköst og þá á ég ekki við timburmenn. Þorrablótið tókst svona líka dæmalaust vel. Við skemmtum okkur konunglega og klukkan var allt í einu orðin næstum 4 og við ákváðum að tími væri kominn til að drífa sig heim. Börnin að passa og gista á ýmsum stöðum, svo við vorum ein heima. Ég vaknaði samt í gærmorgun klukkan átta eins og venjulega. Sofnaði líka snemma í gærkvöldi.

Hm...

Your Power Color Is Teal At Your Highest: You feel accomplished and optimistic about the future. At Your Lowest: You feel in a slump and lack creativity. In Love: You tend to be many people's ideal partner. How You're Attractive: You make people feel confident and accepted. Your Eternal Question: "What Impression Am I Giving?" What's" Your Power Color?

"Nú er frost á fróni"

Þetta verður örugglega sungið af krafti í kvöld á þorrablóti íbúa Eyjafjarðarsveitar, þó að úti sé sunnanvindur og sjö stiga hiti. Ég er búin að taka til matinn að mestu, búin að sortera ballkjólana og velja úr. Auðvitað var blettur í kjólnum sem að ég valdi fyrst þannig að ég henti mér í að þvo og strauja. Eftir dauðaleit að nælonsokkabuxunum sem ég keypti í gær, var JÓH sendur með miða í bæinn og nákvæmar lýsingar á stærð og lit. Hann leysti auðvitað úr þeim vanda án vandræða. Þegar ég var loksins búin að ná blettinum úr og þurrka kjólinn með straujárninu fór ég, IH til mismikillar skemmtunar, að máta "gömlu" kjólana mína. Á endanum ákvað ég svo að fara á blótið í kjól sem ég hef nú ekki lagt í að fara í í mörg ár öhö... (svartan þröngan flaueliskjól!!!) Þannig að ég er bara ánægð með sjálfa mig. Svo er spurningin, hvernig verða skemmtiatriðin, annállinn, hljómsveitin (ég keypti mér nýja skó um daginn)??? "frýs í æðum blóð kveður kuldaljóð kári í jötunmóð...." Brr...

ég bloggaði í fyrradag líka

Samkvæmt veðurspánni átti að vera stórhríð og stormur hér í morgun. En það hefur ekki bærst hár á höfði hér í allan dag. Hagstæði vindátt fyrir okkur framfirðinga. Ekki það að það hefði breytt neinu. Hér er ekki lengur felldur niður skóli vegna veðurs og meðan ég kemst sjálf í vinnuna á ég að mæta. Sem er auðvitað bara hið besta mál. Helgin var auðvitað ekki sérlega góð fyrir mig og nýju vigtina. Þetta er hin mesta græja sem ég fjárfesti í. Tölvustýrð með ýmsum möguleikum. Enda var hún fokdýr. Ég ákvað að það væri betra að hugsa um gæði frekar en verð minnug þess að sú síðasta(ódýrt drasl!) entist ekki í ár. (Af hverju skyldi það nú vera??) En tölurnar eru ekki alveg nógu jákvæðar. Hmmm... Svo er ég farin að sauma út. Eftir að ég fékk gleraugun og sé heiminn í nýju ljósi, eða þannig, dró ég fram gömul ókláruð handavinnuverkefni og ætla að hlamma mér fyrir framan sjónvarpið í kvöld og glápa á endursýningu á Golden globe verðlaunaafhendingunni á stöð 2. Milli þess sem ég munda nálina og ...

Letilíf!

Matarklúbbshelgi. Loksins höfðum við okkur í það að hittast fjölskyldurnar á hlutlausu svæði, mættumst nokkurn vegin á miðri leið. Í Ytri-vík á Árskógsströnd og lögðum undir okkur gamla húsið með öllu tilheyrandi. Það var komið að okkur að sjá um matinn en við fengum aðstoð í þetta sinn því Maggi og Rut komu með kóngakrabbaklær með sér frá Ólafsfirði sem hafðar voru í forrétt og Hofsárbændur lögðu til annað af tveimur lambalærum sem lögð voru á grillið. (Hitt lambalærið var að vísu líka af Hofsárskum uppruna en rataði í frystikistuna okkar upp úr haustslátrun). JÓH sá um eldamennskuna að mestu og ég um meðlætið. Það er svo skrambi góð verkaskifting á þessu hjá okkur. Það er víst best að geta þess að við vorum með börnin með okkur því þó að við séum öll mikil átvögl eru tvö læri full mikið fyrir sex manneskjur en við vorum tólf sem sátum til borðs en þrettándi gesturinn er bara fimm mánaða. Það var nú samt alveg hægt að borða yfir sig og enginn fór svangur í rúmið. Við tókum því svo fr...